Sofðu Betur
Svefnparið – Loop Eclipse™ + Loop Dream™
Couldn't load pickup availability
Myrkur og ró fyrir dýpri svefn
Vaknarðu við birtu eða hljóð á nóttunni?
Sumarbjartar nætur á Íslandi, ljós frá götunni, hrotur makans eða umferð fyrir utan gluggann. Oft þarf ekki mikið til að raska svefninum. Stundum vöknum við og munum ekki einu sinni eftir því morguninn eftir, en finnum samt fyrir því yfir daginn.
Af hverju skiptir góður svefn svona miklu máli?
Svefninn er ein af grunnstoðum heilsunnar, rétt eins og mataræði og hreyfing. Á meðan við sofum vinnur líkaminn að endurheimt, styrkir ónæmiskerfið og vinnur úr minningum dagsins. Svefninn hefur líka áhrif á einbeitingu, skap og orku. Það skiptir ekki bara máli hversu lengi við sofum, heldur líka hversu samfelldur og djúpur svefninn er.
Tvennt hefur hvað mest áhrif á svefnumhverfið: ljós og hljóð. Myrkur gefur heilanum merki um að framleiða melatónín og búa sig undir svefn. Kyrrð gerir svefninum kleift að haldast samfelldur alla nóttina. Svefnparið tekur á hvoru tveggja.
Tvær vörur sem vinna saman:
Loop Eclipse™ svefngríman útilokar birtu án þess að þrýsta á augun. Hún er með mótuðu rými fyrir augnlokin svo þú getur blikkað eðlilega. Það hentar líka þeim sem eru með löng augnhár.
Loop Dream™ eyrnatapparnir draga úr hávaða um allt að 27 dB (SNR), sem er mesta hljóðdeyfingin í Loop línunni. Þeir eru úr mjúku sílikoni með froðutoppum sem laga sig að eyranu og eru hannaðir fyrir þá sem sofa á hliðinni.
Saman skapa þær dimmt og rólegt svefnumhverfi, hvar sem þú ert.
Helstu kostir Svefnparsins:
- Myrkur og kyrrð í einum pakka: Lokar á birtu og dempar truflandi hljóð.
- Enginn þrýstingur á augun: Mótuð gríma sem liggur ekki á augnlokunum.
- Allt að 27 dB hljóðdeyfing: Dregur úr hrotum, umferð og næturhljóðum.
- Hentar hliðarsvefni: Bæði gríman og tapparnir eru hönnuð til að valda sem minnstum þrýstingi þegar þú liggur á hliðinni.
- Helst á sínum stað: Stillanlegt höfuðband og eyrnatappar sem sitja vel alla nóttina.
- Efni sem andar: Létt og loftgóð gríma sem hitnar ekki.
- Endurnýtanlegt: Þú getur þvegið grímuna og notað tappana aftur og aftur.
Fyrir hvern hentar Svefnparið?
- Þá sem eru með léttan svefn og vakna auðveldlega
- Þá sem sofa við hlið maka sem hrýtur
- Þá sem eiga erfitt með að sofa í björtum sumarnóttum
- Vaktavinnufólk sem þarf að sofa á daginn
- Ferðalanga sem sofa á hótelum, í flugi eða í nýju umhverfi
- Foreldra sem þurfa að nýta hverja mínútu af svefni
- Alla sem vilja gefa svefninum betri skilyrði
Hvað fylgir með?
- Ein Loop Eclipse™ svefngríma (svört)
- Eitt par af Loop Dream™ eyrnatöppum (black-blue-purble-orange)
- Eyrnatoppar í mismunandi stærðum (XS, S, M og L) svo tapparnir passi vel
- Geymsluveski fyrir eyrnatappana
Betri svefn byrjar á betri svefnaðstæðum
Við getum ekki alltaf stjórnað birtunni og hljóðunum í kringum okkur, en við getum skapað betri aðstæður fyrir svefninn.
Svefnparið – því góður dagur byrjar á góðri nótt.

